Það er kominn júní og það meira að segja kom smá sól í dag! Við bjuggum hérna í íbúðinni okkar í tvö ár án svalahúsgagna og ákváðum að splæsa loksins í núna í byrjun maí fyrir sumarið, og ég held það hafi bara ekki skinið einu sinni sól á svalirnar síðan við keyptum þau. Við keyrðum líka til Hveragerðis þar síðustu helgi til þess að kaupa sumarblóm í Flóru og ég er búin að geyma þau inni síðan svo þau myndu ekki fjúka í burtu. Ég ætla rétt að vona að veðrið sem var í dag sé komið til þess að vera, í nokkra daga í viðbót að minnsta kosti.

Ég verð grasekkja þessa helgi en Oliver er að fara með liðinu sínu að keppa á Egilstöðum um helgina. Við Emma ætlum bara að vera tvær saman að gera eitthvað skemmtilegt, hún er búin að óska eftir því að við búum til pizzu saman og horfum á Hvolpasveitamyndina (í hundraðasta skipti). Svo við munum hafa það notalegt og kannski baka eitthvað skemmtilegt. Ég er með nokkrar ótrúlega skemmtilegar hugmyndir skrifaðar niður að bloggfærslum og er svo spennt að framkvæma þessar hugmyndir í eldhúsinu um helgina og í vikunni.
Sigþóra vinkona mín kom með mjög góða hugmynd að bloggfærslu nýlega og ég ætla að henda í hana núna. Hún bað mig semsagt um að gera færslu um mína uppáhalds matarbloggara.
Half Baked Harvest – Ég elska að lesa bloggið hennar Half Baked Harvest eða Tieghan eins og hún heitir. Hún er ung kona sem býr í Colorado í fjöllunum þar með risastóru fjölskyldunni sinni og sínir oft á Instagram á bakvið tjöldin í eldamennsku og frá öllum systkinum sínum og foreldrum sem eru öll rosalega sæt. Uppskriftirnar hennar eru ótrúlega girnilegar og manni langar að smakka allt sem hún gerir. Ég deildi einni uppskrift frá henni á blogginu mínu en hún er hér. Ég mæli heilshugar með henni hvort sem það er bloggið hennar, Instagram hjá henni eða matreiðslubækurnar hennar.
Baka med Frida – Ég fylgi Frida á Instagram og baka oft af blogginu hennar, svo á ég tvær bækur frá henni líka. Uppskriftinar klikka ekki og ég elska auðvitað allt sænskt, sérstaklega bakkelsi. Hér er ein uppskrift sem ég deildi á blogginu mínu frá henni.
My kitchen stories – Camilla Hamid er sænsk kona sem bakar algjörar bombur. Hún er líka að deila mataruppskriftum en er mest í bakstri. Hún er ótrúlega dugleg að baka og gerir ekkert smá flottar kökur. Ég mæli með að skoða bloggið hennar og fylgja henni á Instagram.
Matplatsen – Mamma sýndi mér þetta blogg fyrir löngu síðan og mér finnst alltaf gaman að skoða það annað slagið, ég fylgi henni líka á Instagram, ég fylgist eiginlega meira með henni þar en á blogginu hennar.
Whats Gaby cooking – Síða sem ég hef mikið notað, finnst hún mjög skemmtileg og fjölbreytt.
Justines table – Ég elska að fylgja henni á Tiktok, hún er með svo svakalega notalegt andrúmsloft í videounum sínum og gerir rosalega girnilegan mat.
Lindas bakskola – Svo einfaldar og góðar uppskriftir! Það er svo margt sem mig langar að prófa frá henni sem ég er með skrifað niður!
Svo auðvitað skoða ég fullt af íslenskum bloggum, það eru svo mörg geggjuð matarblogg á Íslandi. Nokkur af mínum uppáhalds eru Ljúfmeti (auðvitað), Eldhússögur, Linda Ben, Gotterí og Gersemar, Gulur, rauður, grænn og salt, Eva Laufey og Eldhúsperlur. Þetta er alveg pottþétt ekki tæmandi listi en læt þetta duga í bili.
